Misskilningur?

Síðast þegar ég vissi var stjórnborði skipa hægra megin, en bakborði var vinstra megin.  Ég þori að setja hausinn að veði fyrir því að þetta er svona enn og var þegar Titanic sökk.  Hvar er þá misskilningurinn ef skipunin var að beygja hart á stjórnborða og beygt var til hægri?

 

Það er reyndar að verða óþolandi að lesa fréttir í íslenskum blöðum vegna stafsetningar-og málfræðivilla, auk þekkingarleysis á málefnum.  


mbl.is Titanic þurfti ekki að sökkva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítt er svart!!!...Hækkum bensín og diesel!!!

Ég vil þakka prófessornum, sem kom fram í morgunþætti RUV í dag, fyrir að benda þjóðinni á, að sú aðgerð, að hækka bensín og díesel um svona 5-8 kr. lítrann, sé verbólguletjandi, þar sem menn muni kaupa minna af vökvanum.  Þessi hækkun er auðvitað annars eðlis en þessi venjulega hækkun, sem stafar, að sögn, af hækkandi heimsmarkaðsverði.  Þessi hækkun er kolefnisjafnandi ráðstöfun og því góð og verðbólguletjandi.  Hinar venjulegu hækkanir eru hins vegar vondar og verðbólguhvetjandi.  Má ég bara biðja um enn meiri hækkun af þessari nýju góðu tegund.  Ekki veitir nú af að lækka verðbólguna.  Fólk mun þá draga úr notkun bíla sinna, leggja jeppunum og þeir sem hafa efni á því munu kaupa miðstöðvarlausa rafmagnsbíla og lopapeysu og föðurland - og gluggasköfu. Við, sem hvorki höfum efni á að skipta út gamla Japananum, né borga hærra elsneytisverð, við, sem keyrum yfir 100 km á dag, bara til að komast til og frá vinnu, munum ekki eiga kost á öðru en hætta þeirri vitleysu að stunda vinnu og borga af húsnæði og mun það auka framboð á húsnæði.  Þar sem verið er að leggja byggingariðnaðinn í rúst er það hið besta mál. 

Ég get varla séð að nokkur maður hafi mótmælt þessari "jafnaðarhækkun" á eldsneyti.  Hvað hafa vörubílstjórar um málið að segja?  Hvað um alla þá, sem studdu þá í hjarta á sínum tíma?  Úr því að þessi hækkun er svona jákvæð, þar sem hún dregur úr notkun, hækkar verðlag á allri nauðsynjavöru og dregur þar með úr eyðslu, því ekki galdrast maturinn í verslanirnar, hann þarf að keyra þangað, hvers vegna ekki að lækka launin í stað þess að hækka þau?  Það mætti t.d. byrja á að kynna þessa nýju hagfræði fyrir samninganefnd BHM, sem vill ná fram meiri hækkun en aðrir, það þarf örugglega ekkert minna en háskólamenntun, eða prófessorsstöðu, til að skilja þetta til fulls.

Hvítt ER svart. 

 


Skrambinn...

Ég sem hélt að myndavélarnar væru löngu komnar og hef passað mig á hverjum degi í marga mánuði!!
mbl.is Hraðamyndavélar á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hleranir

Stjórnvöld eiga skilyrðislaust að biðjast afsökunar á hlerunum þeim, sem tíðkuðust á tímum kalda stríðsins.  Einnig eiga þau að upplýsa alla þætti þessa máls og sjá til þess að þessi ósvinna endurtaki sig ekki.  Ef sjórnvöld koma beint og heiðarlega fram í þessu máli ávinna þau sér virðingu, sem ekki veitir nú af!

Eurovision Olympiuleikar Hm Em

Auðvitað eigum við að sitja heima á næstu Eurovision.  Það gengur ekki að Austrið ægilega hirði efsta sætið.  Allt fyrirsjáanlegt og sérfræðingur RUV veit niðurstöðuna fyrirfram.  Bíðum þar til hann gefur grænt ljós á þátttöku.  Sitjum heima þegar næstu Olympiuleikar verða haldnir.  Það er næsta víst að við vinnum ekki þar.  Eða HM.  Eða Em.  Nei öruggast að vera ekkert að keppa erlendis, nema kannske við vini okkar Færeyinga.  En yrðu þeir ennþá vinir okkar ef þeir ynnu okkur?  Nei ekkert er öruggt.  Förum ekki fet, enda miklu ódýrara að bæla sófann.

Dýr dropinn...

Ætli einhver hafi tekið saman hversu margir keyra yfir 100 km á dag bara til að komast í vinnuna?  Það er allir sem búa á Suðurnesjum, Árborgarsvæðinu, Akranesi og víðar og fá ekki atvinnu nema á Reykjavíkursvæðinu.
mbl.is Skutlið helmingi dýrara en í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband